Heilunarfélag Íslands

Leggur upp í

Andlegt ævintýri.

                Við verðum í Miðgarði, Akranesi.

Þann 3. Maí

Húsið opnar kl 19:00

Dyrum lokað kl 20:00

                          Boðið verður uppá kynningu á:

 Heilun

Blómadroparáðgjöf

Tarot lestri

Dáleiðslu

Miðlun

Dagskrá
20:00 Hugleiðsla, kynning á Heilunarfélagi Íslands og
Heilunarskóla Nýjalands.
20:30 Meðferðir hefjast.

Aðgangseyrir aðeins 1.500kr

Himneskur varningur verður til sölu.

    Heilunarfélag Íslands

Leggur upp í


Skyndihjálparnámskeið verður haldið í Nýjalandi, Eiðistorgi á 2.hæð

Þann 7.maí klukkan 17:30-21:30

Námskeiðið kostar 3.500 og fá þáttakendur skirteini frá Rauðakrossinum.

 

Ef þig langar að taka þátt hafðu samband með að senda nafn, kennitölu og símanúmer

á nyjaland@gmail eða hringdu í 8682880 eða 5174290 (Stefanía)

 

Afleiðing samþjöppunar höfuðkúpu.

eftir Thomas Attlee  Skólastjóra Cranio Sacrial School

(HÖFUÐBEINA OG SPJALDHRYGGSJÖFNUN) of London.

Ef höfuðkúpa okkar verður fyrir einhvers konar hindrun í fæðingu er líklegt að það hafi áhrif á okkur öll að einhverju leiti.  Það er álitið að í alvarlegum tilvikum, geti slík hindrun leitt til heilaskaða, heilalömunar, (krampalömunar), eða einhverfu, eða geti átt þátt í vöggudauða.  Í vægari tilvikum getur það leitt til lesblindu, námserfiðleika, ofvirkni, flogaveiki, þráhyggju, persónuleikatruflana og ýmiss konar þroskavandmála.   En í okkur öllum (sem teljumst vera “eðlilegir” einstaklingar) getur slík hindrun, þó hún sé minniháttar, átt mikilvægan þátt í að ákvarða almennt heilbrigði okkar og líkamsbyggingu, næmleika okkar gagnvart ofnæmi, astma, mígreni, rangeygð og fjölmörgum öðrum kvillum.

Einnig getur hún haft áhrif á þroska allra kerfa líkamans, (taugakerfisins, meltingarkerfisins, ónæmiskerfisins, o.s.frvs.) 0g þannig haft áhrif á allt

okkar líf.

Við skulum skoða hvernig fæðingin gengur fyrir sig. Barninu er þrýst niður mjög þröng göng með höfuðið á undan.  Höfðinu er þrýst saman og það þvingað niður þessi þröngu göng á löngum tíma, oftast á nokkrum klukkutímum, en ferlið getur líka tekið sólarhring eða meira.

Skoðum líka höfuðkúpu nýfædds barns. Hún er ekki samansett úr hörðum beinum, (því þá mundi hún ekki komast niður fæðingarveginn), heldur fíngerðri himnublöðru.  Kúpuhvelfingin samanstendur af mjúkum ófullgerðum beinplötum sem tengdar eru saman með himnu, og kúpubotninn sem er sveigjanlegur, samanstendur af hálf mynduðum beinum sem tengjast hvert öðru með sveigjanlegu vaxbrjóski.  Mikill þrýstingur á þessa viðkvæmu vefi í margar klukkustundir, (eins og tilfellið er um flestar fæðingar), ýtir höfuðkúpubeinunum upp á við, hvert af öðru og aflagar höfuðið verulega.

Þetta er eðlilegt og óhjákvæmilegt, en ef höfuðkúpubeinin halda áfram að vera í þessari stöðu, eða ef þau ná ekki að losna fullkomlega, þá geta þessar afmyndanir hindrað rétta mótun höfuðkúpunnar og á þann hátt takmarkað þroska heilans.

Sem betur fer hefur líkaminn yfir kröftugum meðfæddum aðferðum að ráða sem gerir honum kleift að lækna sjálfan sig og laga það sem aflaga hefur farið. Þegar höfuðið er komið í gegnum fæðingarveginn taka slíkir lagfæringarkraftar til við að koma höfðinu í það horf sem því er ætlað að vera.

Samt sem áður tekst þessi meðfædda lagfæring sjaldan fullkomlega.  Hversu vel hindranir og samþjappanir lagast  af sjálfu sér er mjög breytilegt frá einum einstaklingi til annars og er fyrst og fremst háð því hvernig fæðingin gengur fyrir sig.

Fyrir flest okkar eru afleiðingar slíkra hindrana á höfuðkúpu okkar og heilaþroska tiltölulega litlar.

En þegar um erfiða eða langdregna fæðingu hefur verið að ræða, þar sem þrýstingurinn á höfuð barnsins hefur verið mikill í langan tíma og jafnvel enn meiri vegna rangrar fæðingarstöðu eða ofnotkunar fæðingartanga og sogklukku, þá geta höfuðbeinin pressast svo fast saman eða afmyndast svo mikið að meðfæddir lækningarkraftar geta ekki leyst úr mishverfunni.  Og það er þá sem búast má við þeim alvarlegu einkennum sem áður var talað um, en það fer þó alveg eftir því hversu mikil afmyndunin hefur orðið.   Bein höfuðkúpunnar ættu, í eðlilegu heilbrigðu ástandi, að geta hreyfst frjálst hvert gagnvart öðru um saumana þar sem beinin mætast.  Þessi hreyfing er sérstaklega óþvinguð í höfuðkúpu nýbura og hún heldur áfram að vera fyrir hendi í minna mæli fram á fullorðinsárin eftir því sem beinin renna smátt og smátt saman.  Allir hlutar höfuðkúpunnar, bæði utanvert og djúpt innan hennar, geta færst úr stað, og allir saumarnir á milli beinanna geta orðið fyrir hreyfihindrun vegna slíkrar þjöppunar.  Hindranir hvar sem er í höfðinu geta hindrað þroska heilans og áhrifin eru breytileg eftir því hvar hindrunin er staðsett.

Takmörkuð hreyfing, hvar sem er í höfuðkúpunni, er líkleg til að hafa áhrif á hana í heild sinn og getur þannig truflað þroska heilans á marga og ólíka vegu.

Hnakkabeinið er sérstaklega viðkvæm fyrir skaða af tveim ástæðum. Í fyrsta lagi vagna staðsetningar sinnar neðst á höfuðkúpunni er það líklegt til að verða fyrir miklum krafti og þar af leiðandi truflun. Í öðru lagi umlykja hinir fjórir hlutar hnakkabeinsins mænugatið.  Ef staðsetning þeirra raskast er líklegt að óeðlilegur þrýstingur komi á mænuna eða heilastofninn, ef til vill með skaðlegum afleiðingum.  Þar sem hnakkabeinið er enn í fjórum hlutum, sem tengdir eru saman með brjóski, við fæðingu, raskast afstaða beinhlutana hvor gagnvart öðrum auðveldlega.  Brjósksvæðin geta þjappast saman og valdið truflun á áframhaldandi vexti hnakkabeinsins og það síðan aflagast í samræmi við þetta ósamhverfa mynstur.  Þetta getur síðan haft áhrif á alla höfuðkúpuna. Í mildari tilvikum ósamhverfu, sem hefur áhrif á okkur öll að einhverju leyti, koma hin fjölbreytilegu einkenni hindrana í höfuðkúpu smám saman fram eftir því sem tíminn líður.   Í slíkum tilvikum er líklegt að einkennin séu ekki greind rétt, heldur flokkuð sem “eðlilegt” heilsuleysi, “eðlilega” takmarkaðir hæfileikar eða einfaldlega sem persónuleg sérkenni.  Jafnvel í tiltölulega alvarlegum tilvikum koma einkenni, eins og námserfiðleikar eða vandamál í sambandi við samhæfingu hreyfinga, ekki skýrt fram fyrr en eftir mörg ár. Skýringin er að hluta til sú að afmyndað höfuð hefur ef til vill engin truflandi áhrif á þroska heilans fyrst í stað.   Það er ekki fyrr en heilinn leitast við að stækka og þroskast fullkomlega að afleiðingar beinahindrananna fara að segja til sín og hindra þroskann.

Hins vegar koma meiri háttar hegðunartruflanir hjá börnum ef til vill ekki skýrt í ljós fyrr en barnið er komið á þann aldur að farið er að búast við flóknari hegðunarmynstrum hjá því.

Í þeim tilvikum eru líka afleiðingar eins og námserfiðleikar taldar orsakast af hæfileikaskorti, arfgengum þáttum, geðtruflunum eða margvíslegum óþekktum orsökum. Í alvarlegustu tilfellunum geta einkennin verið augljós strax við fæðingu, t.d. greinileg krampalömun (spasticity), öndunarerfiðleikar eða afmyndun á höfði.

En jafnvel í allra alvarlegustu tilvikunum, eins og t.d. þegar um heilalömun (cerebral palsy) er að ræða, er líklegast að hefðbundnir læknar greini einkennin sem heilaskaða, þegar staðreyndin er sú að þroski heilans og starf hans er einungis hindrað og takmarkað vegna alvarlegrar afmyndunar höfuðkúpunnar.

Þetta kemur skýrt fram í eftirfarandi sjúkrasögu sem Bery Arbuckle sagði frá: Mig langar til að segja sögu eins nýbura.  Móðirin var búin að vera tólf klukkustundir í fæðingu með höfuð barnsins í andlitsstöðu.  Þegar hér var komið sögu var gerður keisaraskurður en barnið hafði þegar orðið fyrir skaða.  Einkennin voru blámi, veikur grátur, skjálfti og sprengiuppköst.  Einstakir hlutar hnakkabeinsins voru ranglega staðsettir umhverfis mænugatið, en auk þess voru stikilshyrnurnar á gagnaugabeinunum dældaðar báðum megin, fremri höfuðmótin horfin, ennisbeinin gersamlega flöt, og mót ennisbeina og nefbeina, (nasion) dregin svo langt niður að hornið virtist næstum vera hvasst.  Áður en beðið var um höfuðbeina og spjaldhryggsmeðferð fyrir þetta barn, hafði foreldrunum verið sagt að heili barnsins hefði skaddast.

Við skulum minnast þess að við fæðingu er miðtaugakerfið það kerfi líkamans sem er minnst þroskað og heilinn er þess vegna, á þessu skeiði lífsins langt frá því að vera  fullþroskaður.

Sprengiuppköstin hættu eftir fyrstu CS meðferðina og bláminn hvarf smám saman.  Áframhaldandi súrefnisgjöf var því   óþörf.  Eftir aðra meðferð gat barnið sogið og kyngt og þannig tekið til sín nauðsynlega fæðu.  Næstu tvo dagana var barnið látið ótruflað og fékk ekki meðferð.  Klínísk einkenni hurfu, ennið varð kúpt, fremri höfuðmótin urðu greinileg og hin fimm voru einnig finnanleg, en það var enn óeðlilega hvasst horn á mótum ennis og nefbeina. Það var síðan auðveldlega lagfært með því að setja vísifingurinn upp í munn barnsins og láta það sjúga hann kröftuglega.  Þetta barn, sem nú er á öðru ári, er fullkomlega eðlilegt, sem við teljum vera því að þakka að það átti kost á höfuðbeina og spjaldhryggsmeðferð. Staðan er því sú, að hvers eðlis eða hversu alvarleg sem einkenni barnsins eru, er ólíklegt að hefðbundnir læknar dragi þá ályktun að þau geti átt rætur að rekja til höfuðbeina og spjaldhryggskerfisins eða fæðingarinnar, þannig að tækifærið til að gefa skjóta meðferð er líkleg til að fara forgörðum.

Það er mjög mikilvægt að gefa meðferð eins fljótt og mögulegt er til að tryggja fullkomna úrlausn og bata.

Einstakir hlutar gagnaugabeinsins og fleygbeinsins renna saman á fyrsta árinu, fjórir hlutar hnakkabeinsins renna saman á aldrinum þriggja til sex ára.  Ef afmyndað vaxtarmynstur hefur náð að festast í höfuðkúpunni á þessum tíma, hefur það áhrif á allan frekari vöxt að einhverju leyti.  En þrátt fyrir það er höfuðkúpan áfram sveigjanleg og það er hægt að laga hana til að vissu marki eftir þennan aldur, jafnvel langt fram á fullorðin ár.

En því lengur sem afmyndað mynstur hefur verið til staðar í höfuðkúpunni, því lengri tíma tekur að meðhöndla það og því minni líkur eru á fullkomnum árangri.

Hér kemur önnur saga frá Beryl Arbuckle sem dæmi um þá möguleika sem geta verið fyrir hendi:

Ellefu ára gömul stúlka gekk í sérstakan skóla af því að talið var að hún hefði mjög lága greindarvísitölu.

Hún gekk á snjóþrúgum daglega til að fætur hennar héldust í sundur.  Hendur hennar sýndu hæg viðbrögð og samhæfing þeirra var léleg.  Eftir að hún hafði fengið höfuðbeina og spjaldhryggsmeðferð í um það bil ár hafði líkamlegt ástand hennar batnað svo mikið að hún var farina að geta gengið í almennan skóla, og á fyrstu sex mánuðunum vour tvær sögur eftir hana prentaðar í skólablaðinu.  Hafði hún einhvern tíma lága greinarvísitölu?  Núna er hún fjórtán ára og gömul og bæði skörp og skýr í hugsun, spilar ágætlega á pínaó, hefur þægilega rödd, og eina bæklun hennar er rýr fótur þar sem sinar höfðu verið skornar í sundur, hinn fóturinn þroskaðist eðlilega.  Núna er fóturinn máttlaus, ekki eins og þegar um krampalömun er að ræða, heldur eins og sést hjá þeim sem fengið hafa mænuveiki.”  Það eru að sjálfsögðu ýmis önnur vandamál (önnur en samþjöppun á höfði) sem tengjast fæðingu, meðgöngu og tímabilinu strax að fæðingu lokinni.  Þau vandmál geta verið alvarleg eða lítilvæg, grófgerð eða fíngerð, líkamleg eða andleg, / tilfinningaleg.  Öll þessi vandmál koma fram í höfuðbeina og spjaldhryggskerfinu, og mörg þeirra er hægt að laga með þvi að gefa varfærnislega alhliða höfuðbeina og spjaldhryggsmeðferð.

Aðalmarkmið höfuðbeina – og spjaldhryggsmeðferðar er að koma á og viðhalda heilbrigði og jafnvægi á öllum sviðum.

Dæmi um vandamál, þar sem höfuðbeina- og spjaldhryggsmeðferð hefur orðið til bóta:

Hálshnykkur  (Whiplash ),  Höfuðverkur, Mígreni, Tíðaverkir,

Asthma, Sinusitis, Bronchitis, Blöðrubólga,

Frosin öxl, Liðagigt, Ischias, Langvinn tognun á ökkla, Vandamál í liðum, RSI, Meltingarvandamál,  Hryggskekkjur, Bakverkir, Hálsverkir, Viðvarandi sársauki hvar sem er í líkamanum,

Spenna, Svefnleysi, Sjóntruflanir,

Þrekleysi, Þunglyndi, Kvíði,

Vandamál á meðgöngu og eftir meðgöngu, fæðingarþunglyndi, Fylgikvillar skurðaðgerðar, Samgróningar,

Ungbarnakveisa, Pyloric Stenosis, Vandamál tengd fæðugjöf ungbarna,

Miðeyrabólgur, Vökvi í eyrum, Tonsillitis, ENT vandamál,

Samþjöppun á höfuðkúpu vegna erfiðrar fæðingar ásamt öllum þeim truflunum sem því getur fylgt,

Námserfiðleikar, Lesblinda, Rangeygi, Augnleti, Ofvirkni, Einhverfa, Flogaveiki, Cerebral Palsy,

Hegðunarvandamál, Bræðisköst, Þráhyggjuhegðun,

Tannvandamál og TMJ vandamál,

Höfuðskaðar og hin hárfínu áhrif þeirra á persónuleika og andlegt ástand,

Heilahimnubólga og langvinnir fylgikvillar hennar,

Post Viral Syndrome, ME, Glandular Fever, Síþreyta,

Fylgikvillar hvaða langvinnra veikinda eða veiklandi sjúkdóms sem er.

Þýðing úr kynningarbæklingi frá

“Primrose Hill Natural Health Center” í London,

Nú á tímum umbyltinga og breytinga þar sem eyðileggjandi óheiðarleiki, grimmd og græðgi eru að víkja fyrir sannleika, samkend og heiðarleika finnst mér ástæða til að minna á að við búum yfir frábærri þekkingu til að bæta og breyta ástandi fólks til betra og heilbrigðara lífs með mjög litlum kostnaði. Þetta er það sem blasir við samfélaginu í nánustu framtíð. Heilbrigðiskerfið okkar er að sligast undan skuldum og er allt of flókið og dýrt til að hægt sé að reka það áfram eins og verið hefur. Ég er alveg sannfærð um að það verður í æ ríkari mæli leitað eftir okkar þjónustu Höfuðbeina- og spjaldhryggsjafnara ásamt öllum öðrum óhefðbundnum heilsutengdum meðferðarformum. Okkar tími er komin. Ég vil því eindregið hvetja félagsmenn til að vera eins sýnileg í samfélaginu eins og mögulegt er. Því duglegri sem við erum við það því hraðara gengur ferlið í þá átt að óskað verið eftir okkar þjónustu í meira mæli. Þannig geta fleiri og fleri gert það að atvinnu að vinna sem Höfuðbeina- og spjaldhryggsjafnar. Stöndum saman virkjum þennan auð sem við höfum. Fólk almennt vill taka miklu meiri ábyrgð á sinni heilsu og er tilbúið að taka þátt í því að prófa þau meðferðarform sem hafa fengið þann orðspor um að gefa mjög góða raun án áhættu um að verið sé að skaða eða skemma á nokkurn hátt. Höfuðbeina- og spjaldhryggjöfnun er ein frábær leið til betra lífs og við eigum að vera stolt af því að hafa þessa lausn fyrir fólk.

Að lokum vil ég óska öllum velfarnaðar, setjum upp gleraugu bjartsýninnar og við munum sjá heiminn í nýju ljósi, fullan af tækifærum.
Það er auðvelt að treysta þegar allt leikur í lyndi. Mikilvægara er að geta treyst þegar mikið gengur á og stormar lífsins geysa.

Gleði, friður og hamingja. Þessi orð sagði gömul kona sem lá á bekknum hjá mér og brosti um leið og hún sagði: “það er allt sem þarf”.


Kær kveðja Stefanía Ólafsdóttir fyrrverandi formaður Cranío, Félags Höfuðbeina- og spjaldhryggjafnara

Brostu, haltu áfram að brosa og aðrir munu brosa með þér.

Verið Velkomin

Heilunarfélag Íslands

Leggur upp í

Andlegt ævintýri.

Við byrjum í Tryggvaskála Selfossi.

Þann 11 Apríl

Húsið opnar kl 19:30

Dyrum lokað kl 20:30

Boðið verður uppá kynningu á:

Heilun

Blómadroparáðgjöf

Tarot lestri

Dáleiðslu

Miðlun

Aðgangseyrir aðeins 1.500kr

Himneskur varningur verður til sölu.

Fyrirhugaðir fundir hjá stjórn Heilunarfélags íslands eru:

 

20 mars kl 16:30

14 apríl kl 10:00

28 apríl kl 10:00

12 maí kl 10:00

 

Fundirnir eru allir haldnir í Nýjalandi, Eiðistorgi 13. 2. hæð.

 

Mér er það sönn ánægja að tilkynna þér að það hefur verið stofnað Heilunarfélag Íslands.

Tilgangur félagsins er að efla og auka menntun og að standa vörð um starfsumhverfi heilara. Að vera innan handar við að finna viðurkennda menntunarleiðir varðandi heilun fyrir almenning. Að auka skilning heilbrigðisstétta, yfirvalda og almennings á heilun. Að vinna að því að heilun verði viðurkenndur valkostur innan heilbrigðiskerfisins.

Það eru allir velkomnir Heilarar, jafnt sem velunnarar.

Stofnfundur verður haldinn 1. Okt. n.k. í Nýjalandi Eiðistorgi 13. 2. hæð kl. 13:00

Hvað er heilun?

Heilun er orka sem við getum nýtt okkur í eigin þágu og annarra til betra lífs andlega og líkamlega. Til þess að tengjast þessari orku og miðla henni eru margar leiðir. Við getum notað þær allar en veljum þá leið sem hentar okkur best miðað við aðstæður í hvert sinn. Þessar leiðir eru byggðar á margra alda reynslu mannsins og þeirri þekkingu sem við eigum um líkamskerfið okkar.

Jarðlíkaminn, Orkublikið og Orkustöðvar er það sem unnið er með í heilun.

Heilarar hafa það alltaf hugfast að þeir eru aðeins verkfæri til að leiða heilunarorkuna, það er alltaf unnið í auðmýkt og þakklæti.

Það eru þrjár leiðir til að tengjast og leiða heilunarorku.

1.Uppspretta Alheims

2.Uppspretta Jarðar

3.Uppspretta Hjartans

Heilun virkar á öll svið manneskjunnar og einangrar aldrei líkamann frá hinum sviðunum, það er því tilfinningalega, hugræna og andlega. Í því er fólgin fegurð heilunarinnar og styrkur.  Orðið heilun merkir að gera eitthvað heilt.  Þegar talað eru um heilun er oft átt við orkugjöf eða andlega lækningu , sem getur haft jákvæð áhrif bæði á líkama og sál.  Heilun getur verið í mörgum myndum, eins og til dæmis gott faðmlag, bros, fyrirbænir eða fallegar hugsanir til einhvers, svo lengi sem kærleikur er að baki.  Því er hægt að segja að allir hafa einhvern tíma gefið og þegið heilun.

Oft er talað um sálræna heilun (spiritual healing), því heilunarorkan er miðill fyrir andlega eða guðlega orku sem ferðast í gegnum heilarann til þiggjandans.  Þessi heilunarorka byggir upp orkuforða þiggjandans til þess að hann geti betur tekist á við veikindi eða meiðsli.  Heilarinn er þá eins konar verkfæri/millistykki  fyrir æðri máttarvöld.  Í austurlöndum er þessi orka kölluð Prana, sem er orð á sanskrít yfir andardrátt og merkir lífsorkan eða lífskrafturinn , líka talað um Ki  eða Chi orku.  Þessi lífskraftur hefur hlutverki að gegna í bæði líkamlegri og andlegri heilsu.  Chi orkan og áhrif hennar er líka kennd í nuddi, við erum alltaf að nota þessa frábæru orku. Þessi náttúrulega orku má finna í öllu lífi og út um allt.  Það má hlaða eða afhlaða sig með því að fara út í náttúruna, hlusta á tónlist (lifandi, klassísk tónlist hefur til dæmis háatíðni sem er góð fyrir sál og líkama) Tónlist  Backs hefur oft verið nefnd sem góð til heilunar.  Steinar, kristallar og olíur hafa líka tíðni sem gott er að nota til heilunar.  Gott er að dansa og hreyfa sig til að ná góðri jarðtengingu, jafnvel að fara í sturtu eða sund og nota vatnið sem regnboga sem er verið að synda í eða renna niður líkamann til heilunar.  Líkaminn okkar er mjög fullkomið tæki og er í flestum tilfellum mjög fær um að lækna sig sjálfur, en gott að fá smá aðstoð þegar með þarf til dæmis frá heilara.

 

Hvers vegna að fara í heilun.?

Stundum oflöðum við okkur og verðum yfirspennt, eða lendum í áföllum og þá þurfum við að tappa af þessari orku.  Í öðrum tilfellum getum við orðið orkulítil og verðum þreytt eða slöpp og þá verðum við að hlaða okkur til þess að geta tekist á við daginn líka hægt að segja að við þurfum að hlaða batteríin. Líkaminn er líka fær um að láta okkur vita hvers við þörfnumst (verður að hlusta) til þess að vera heil. Það eru auðvita takmörk fyrir því hversu mikið er hægt að leggja á hann eins og við vitum.  Í samfélaginu í dag er til dæmis mikill hraði og miklar kröfur gerðar og því auðvelt fyrir líkamann að ofhlaða sig eða tapa orku og oft getur verið of mikið í gangi til þess að við getum eða gefum okkur tíma til að hlusta á líkamann.  Við hunsum verki og vanlíðan og keyrum okkur áfram. Það má líka nefna að við borðum kannski mat sem líkaminn á erfitt með að melta og hreinsa.  Drekkum of lítið af hreinu vatni sem er gott fyrir líkamann að fá til að hjálpa til við hreinsun.  Einnig vilja sumir, sem á það trúa, jafnvel meina að fyrri líf geti haft einhver áhrif á líf okkar í dag.

Oft er talað um að veikindi komi fram í orkusviðinu áður en þau ná að festa síg í líkamanum.

Á meðan þau eru bara í orkusviðinu eigum við auðveldara með að takast á við þau og losa okkur við þau, þó okkur takist það ekki alltaf. Stress, álag og ýmislegt fleira getur líka orðið þess valdandi að okkur reynist stundum erfitt að kljást við það sem hrjáir okkur og getum þurft á aðstoð að halda.
Nokkrar tegundir heilunar:

( Ath. Það eru til hátt á annahundrað aðferðir til heilunar).

Prönu heilun

Lífsorkan hefur sinn eigin takt, sem býr í mænuvökvanum. Þaðan flæðir hún um hryggsúluna upp til heilans. Hver einasta fruma líkamanns hvar sem hún er staðsett inniheldur þessa lífsorku.

Í Prönu heilun stendur heilarinn hjá viðkomandi og notar hendurnar til að senda prana (ki, chi, lífsorka, alheimsorka, ljós, kærleika o.s.frv.).

Hún er að hluta til meðvituð heilunarmeðferð, þar sem heilarinn notar hugsun með aðstoð leiðbeinenda sinna. Lífsorkan er eins og bylgja sem hreyfist taktfast fram og til baka.
Reiki

Margir haf heyrt talað um Reiki og lært þá heilunaraðferð, en hún telst til svokallaðrar prana heilunar þó alltaf sé notuð þessi lífsorka eða prana í heilun.  Þeir sem læra Reiki þurfa ákveðin námskeið og vígslur til þess að ná þessa beinu tengingu og læra táknin sem þeirri aðferð fylgja.

 

Hugræn heilun

Í hugrænni heilun sendir heilarinn hugboð til líkama viðkomandi. Það getur verið til alls líkamans, eða til afmarkaðs svæðis eða líffæris. Þetta getur heilarinn gert í návist heilunarþega eða í fjarheilun. Undirmeðvitund heilunarþegans segir til hvað þarf að heila. Oft eru margir heilarar að vinna saman með hugræna heilun eða stundum kallað Fjarheilun.

Óeigingjarn kærleikur, en ekki ástríðufull bæn sem felur í sér kröfur um úrlaus, er lykill að fjarheilun eins og allri heilun.

Andleg heilun

Í andlegri heilun lætur heilarinn alheimsorkuna flæða í gegnum sig til heilunarþegans. Það er krafist meira af heilaranum í andlegri heilun en í hinum fyrrnefndu. Hann þarf að vera andlega þroskaður og “næmur” eða jafnvel skyggn.  Það er oft í þessum tilfellum sem heilarinn sér svæði á líkamanum lýsast upp, eins skynjað að englar eða ljósverur  hafa komið til aðstoðar. Heilunarþegi þarf að vera jákvæður og opinn gagnvart því sem gert er, til að geta tekið á móti heiluninni.

Prönu heilun og hugræna heilun geta allir lært, rétt eins og allir geta lært að spila á hljóðfæri. En það fer eftir áhuga og hæfileika manna, hvernig árangurinn verður.

 

Kristalla heilun

Hér eru notaðir steinar og kristallar til heilunar .Hver tegund af steinum og kristölum hefur sinn sérstaka mátt til heilunar. Sá sem notar þessa tegund heilunar þarf að hafa víðtæka þekkingu á tegund steina og liti þeirra og  áhrifamætti.

 

Ilmkjarnaolíur eða Aromatherapy

Ilmmeðferðir eru þekktar frá Forn-Egyptum, Forn Grikkjum, úr biblíunni og það er vitað að Hippokrates faðir nútíma læknisfræðinnar mælti með nuddi með ilmolíum og daglegu ilmbaði.

Það er vitað að þekking til að búa til ilmkjarnaolíur og nota þær til heilunar er alda gömul og er í frásögum í elstu sögum mannkyns. Ilmkjaraolíur eru búnar til úr blómum og jurtum.

María Magdalena smurði Jesú með ilmolíum. Í fornöld voru aromatískar jurtir með dýrustu verslunarvörum.

Kleopatra hin glæsilega, drottning Egypta er sögð hafa átt garð meira virði en nokkuð annað, sem rækturð voru öll möguleg blóm. Hún hélt við fegurð sinn með hjálp arómatískra jurta.

Á miðöldum þróuðu gullgerðamenn eða Alkemistar eimingatæknina. Þeir héldu að þeir hefðu fundið 5. frumefnið og nefndu olíurnar, Quintessence sem er notað en í dag eða Essential oils. Á miðöldum var fólk farið að skilja að það var samhengi á milli heilsufars og ilmríkra efna.

Helstu ilmkjarnaolíur Evrópu og Austulanda eru uppgvötaðar í upphafi 17. aldar.

 

 

Blómadropar

Það má segja að blómadropar tilheyri nýrri grein lækninga sem öðlast krafta sína frá lífskröftum  blóma og jurta.

Blómadropar eru vökvi sem bera með sér krafta og eiginleika hvers blóms eða plöntu. Þeir innihalda því lítið magn af efni og eru þess vegna ekki flokkaðir sem lífefnafræðilegt lyf.

Blómadropar vinn ekki með því að ráðast beint á sjúkdóminn, heldur auka þeir orkuflæðið í líkama okkar og sál. Þannig hjálpa þeir okkur að ná aftur þeim tengslum sem tapast hefur, vegna viðbragða okkar við erfiðleikum lífsins.

Heilsan batnar þegar tilfinningalegt jafnvægi verður jákvæðara. Líkt og matur nærir líkama okkar næra blómadropar sál okkar og bæta bæði tilfinningalegt og sálfræðilegt jafnvægi og vellíðan.

Blómadropar raska ekki öðrum hefbundnum lækningum og koma ekki í staðinn fyrir þær. Þeir eru fullkomlega öryggir hver sem þarfnast hjálpar frá 0 -99 ára geta notað blómadropa.

Dr. Edward Bach sem á allan heiður af því að uppgvöta eiginleika blómanna á þennan hátt sagði: “Það er sama hvaða sjúkdómur á í hlut, hversu alvarlegur hann er og hversu lengi hann hefur varð. Ef hægt er að vekja lífslöngun sjúklingsins batnar honum.”

 

Tónaheilun

Hér er eingöngu notaðar tónkvíslar.  Tíðni tónana hefur áhrif, áhrifin eru eins og þegar það er steini fleygt á vatni og hann skoppar á vatninu.  Það virkar eins á líkamann þar sem líkaminn er svo há prósenta af vatni, og þá losnar um stíflur.

Litaheilun

Sérhver sjúkdómur tengist skorti á ákveðnum lit eða litum í árunni og um leið í umhverfinu.

Litaöndun er mögnuð sjálfheilunarmeðferð, gott að nota ef við finnum að við erum að veikjast af flensu t.d.

 

Hugleiðsla

Að stunda hugleiðslu reglulega er mjög heilandi og styrkjandi. Allir ættu að tileinka sér það. Það er hægt að stunda hugleiðslu einn eða í hóp, hvorutveggja mjög gott.


Getur heilun komið í staðinn fyrir hefðbundna læknismeðferð?

Margir vilja meina að hefðbundnar læknismeðferðir taki aðeins á einkennum veikinda í efnislíkamanum en ekki á orsök veikindanna. Þegar orsakirnar liggja í umhverfi manns, lífsmunstri eða sálarlífi getur heilun getur hjálpað manni að átta sig á því hverjar þær eru og þá hvernig hægt sé að takast á við þær. Heilun getur verið góð meðferð bæði samhliða læknismeðferð og þegar hennar er ekki þörf, en ætti að sjálfsögðu aldrei að koma í staðinn fyrir hefðbundnar lækningar. Heilun vinnur frá orkusviðinu og getur haft áhrif á líkamann þannig, en það getur oft verið mikið erfiðara að losna við veikindi á þann máta eingöngu þegar þau hafa náð að festa sig í honum.  Heilun  getur þó flýtt fyrir líkamlegum bata sé hún notuð samhliða hefðbundnum lækningum og hún getur stundum minnkað og komið í veg fyrir óþægindi sem fylgja aukaverkunum af lyfja- og geislameðferðum.
Heilari getur hvorki né má taka ábyrgð á eða lofað fullum bata skjólstæðings síns. Hann getur aðeins miðlað þeirri lífsorku sem skjólstæðingurinn getur tekið á móti og aðstoðað hann við að beita henni. Heilari getur aldrei unnið meira á orkusviðinu en skjólstæðingurinn gefur leyfi til og ræður við, hvort sem það er  meðvitað, undirmeðvitundin sem segir til um það eða hinn æðri vilji. Stundum er heiluninni aðeins ætlað að bæta líðan þiggjandans en ekki lækna hann, hverjar svo sem ástæðurnar geta verið fyrir því, og stundum geta aðstæður í lífi hans hamlað heiluninni eða lækningunni og getur þá jafnvel þurft að breyta lífsvenjum og mataræði til þess að tilætlaður árangur náist. Stundum getur heilarinn skynjað hvað veldur og beint skjólstæðingnum á réttar brautir en í öðrum tilfellum verður hann að átta sig á því sjálfur. Þegar uppi er staðið er það þó aldrei heilarinn sjálfur sem læknar einn né neinn eða gerir einhver kraftaverk. Hann aðstoðar aðra við að lækna sig sjálfa.

Hvað gerir heilun?

Heilun hjálpar okkur að styrkja sambandið milli sálar og líkama og koma jafnvægi þar á milli. Hún vinnur bæði með verki og líkamlega kvilla sem og tilfinningar, eins og streitu, áföll, ótta, sorg, þunglyndi, kvíða, reiði o.s.frv., sem geta stundum hindrað okkur að takast á við ýmsar aðstæður í lífinu. Heilun getur hjálpað að skilja þessar aðstæður.  Hún getur einnig styrkt ónæmiskerfið og hjálpað þannig líkamanum að takast á við hvers konar veikindi.
Hvernig fer heilun fram?

Heilun byrjar oft /ekki alltaf á því að þiggjandinn ræðir við heilarann um hvað hann vill vinna með í heiluninni. Algengt er að herbergið sé uppljómað kertaljósum, róandi tónlist spiluð og jafnvel ilmolíur, ilmkerti , blómadropar eða reykelsi eru notuð til að ná réttri stemningu. Sjálfsagt er  að taka það fram ef manni finnst eitthvað af þessu óþægilegt eða truflandi, þó það sé sjaldan tilfellið. Yfirleitt leggst þiggjandinn á nuddbekk, fullklæddur og jafnvel með teppi yfir sér. Gott er að loka augunum og leyfa líkamanum og huganum að slaka á og hugsa um að maður sé tilbúinn til að taka á móti heiluninni. Sá sem fær heilun á ekki að fækka fötum.
Heilarinn tengir sig við alheimskraftinn, ljósið, lífsorkuna eða hvað fólk kýs að kalla það. Þessari orku er beint niður í heilarann og streymir hún í gegnum hann til skjólstæðingsins. Heilarinn aðstoðar við að beina orkunni þangað sem hennar er  mest þörf með því að halda höndunum yfir eða á líkama þiggjandans. Þeir staðir í líkamanum sem þarfnast mest hjálpar og heilarinn er best fallinn til þess að geta aðstoðað með lýsast upp. Getur þá bæði verið um líkamleg eða tilfinningaleg mein að ræða. Á þennan hátt segir líkaminn heilaranum á hverju hann þarf að halda. Heilarinn getur skynjað skilaboðin á mismunandi hátt, eins og t.d. að honum sé sagt frá því eða fái skyndilega vitneskju, jafnvel getur hann séð einhver tákn. Oft sér hann orkuna í litum og stundum er um eins konar röntgenskyggni að ræða og heilaranum finnst hann geta séð líffæri, vefi og þannig lagað. Einnig geta englar og ljósverur í einhverjum tilfellum komið til aðstoðar.  Heilarinn fær líka oft skilaboð um að nota steina eða kristalla, olíur og jafnvel tónkvíslar.
Yfirleitt fylgir heilun djúp slökun, bæði andleg og líkamleg, sem er mjög nauðsynleg og notaleg öllum, stundum dettur heilunarþegin alveg út og sofnar og er það í lagi. Þá fær líkaminn færi á að vinna með heilunarorkuna. Fólk getur upplifað heilunina á mismunandi hátt og sumir finna jafnvel ekki fyrir neinu. Aðrir geta kannski fundið fyrir hita, kulda eða eins konar rafmagnstilfinningu, jafnvel séð liti eða myndir í huganum. Einstaka finna fyrir fleiri höndum en heilarans eða þá að hendur heilarans séu stærri eða minni en þeim finnst að þær eigi að vera (þá getur verið um aðstoð að ræða). Í einhverjum tilvikum geta ýmsar tilfinningar komið upp á yfirborðið og þá er mikilvægt að leyfa þeim að koma og fá útrás, því þetta er  aðferð sem  líkaminn og sálin nota til þess að hreinsa sig. Stundum getur verkur, sem verið er að vinna með, versnað í smá stund og þá ætti ekki að hætta fyrr en hann hverfur, því annars gæti hann mögulega orðið viðvarandi í einhvern tíma,það getur líka komið upp að heilunarþeginn grætur og það er bara góð losun. Það verður að leyfa líkamanum að klára úrvinnsluna, slaka á og streitast ekki á móti þó það geti verið óþægilegt í smá stund. Heilunartíminn er  yfirleitt á bilinu 45-60 mínútur. Eftir að honum er lokið er mikilvægt að drekka nóg af vatni til að aðstoða líkamann við að skila út úrgangs- og eiturefnum sem heilunin hjálpar þiggjandanum að losa sig við.
Ættu allir að fara í heilun?

Hvort sem maður á við heilsufarsleg vandamál að stríða eða ekki getur alltaf verið gott að fara í heilun, því hún getur haft bæði fyrirbyggjandi áhrif og hjálpað manni að slaka á í dagsins önn. Einnig getur heilun farið fram ýmis tilfinningavinna og dregið upp á yfirborðið tilfinningar sem maður hefur ekki unnið almennilega úr og hjálpað manni með þá vinnslu. Stundum geta þær komið á óvart, því við getum verið svo fljót að bæla þær niður. Það getur því allt eins verið að það komi upp tilfinningar gagnvart einhverjum áður gleymdum atburði úr barnæsku sem manni finnst engu máli skipta í dag en hafði djúpstæð áhrif á mann í þeim litla heimi sem maður lifði sem barn eða unglingur. Tilfinningaleg áföll geta stundum orðið að spennu í líkamanum og gott er að losa og losna við þá orku.  Líkamleg áföll geta líka haft tilfinningaleg áhrif og þau geta verið viðvarandi löngu eftir að búið er að takast á við líkamlega vandann. Í sumum tilfellum getur tilfinningalegt áfallið sem fylgdi því líkamlega hamlað líkamlegum bata og geta þau einkenni því orðið viðvarandi þar til búið er að losa um tilfinningarnar. Þess vegna getur það verið öllum gott að leita til heilara af og til.
Hippokrates sagði að líkaminn læknaði sig sjálfur, sá sem veitir meðferð er aðeins verkfæri náttúrunnar til þess.

 

Vefhönnun: Vefsala.com